Folgen
-
Taktík, tár og takkaskór
Það eru 2 vikur til forsetakosninga og þjóðin er með öndina í hálsinum. Spennan sameinar okkur en sitt sýnist hverjum um frambjóðendur. Kjarnafylgi Katrínar virðist fast í 25% en hún leiðir nú aftur í könnunum. Munu villuráfandi sauðir á vinstri vængnum sem hafa stutt Katrínu rata heim í kjörklefanum? Eða sameinast þeir sem vilja eitthvað annað en forsætisráðherra fyrrverandi á Bessastaði og kjósa þann sem á mesta möguleika á að sigra Katrínu. Verður baráttan um að verða sá frambjóðandi svo hörð að það slettist á alla og Katrín siglir þessu heim?Allt um þetta í nýjasta Ræðum það...
Gestastjórnendur: Gísli Freyr Valdórsson, Diljá Ragnarsdóttir og Karl Pétur Jónsson
Stjórnandi: Andrés Jónsson
Stef: Ræðum það - Dire & Nolem
-
Ræðum það... heldur áfram að fylgjast með forsetakosningunum.
Gestir: Sunna Kristín Hilmarsdóttir (í kosningateymi Höllu Hrundar) og Valgeir Magnússon (almannatengill og ráðgjafi Baldurs)
Rætt er um áskoranir í kosningabaráttunni og hvernig frambjóðendur eru að reyna að ná til kjósenda.
Stjórnandi: Andrés Jónsson
Stef: Ræðum það - Dire & Nolem
-
Fehlende Folgen?
-
Ræðum það... fer yfir atvinnumál og nýbreytni í umræðu um efnahagsmál af hálfu Samfylkingarinnar þar sem þau segja hvað þau vilja gera.
Gestur: Kristrún Frostadóttir
Gestastjórnendur: Sigríður Mogensen og Róbert Farestveit
Stjórnandi: Andrés Jónsson
-
Ræðum það... fer yfir stöðuna í baráttunni um Bessastaði
Gestastjórnendur: Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir alþingismaður, Steinar Þór Ólafsson markaðsmaður og samskiptaráðgjafi og Freyja Steingrímsdóttir framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands.
-
Ræðum það... er á pólitískum nótum að þessu sinni.
Rætt er um innkomu Kristrúnar Frostadóttur í útlendingamál, stöðu ríkisstjórnarinnar, einkarekstur í velferðarkerfinu, einkavæðingu ríkisfyrirtækja, eignarhald á bönkum, boðaða sölu Íslandsbanka, tímasetningu kosninga og möguleg stjórnarmynstur eftir næstu kosningar.
Gestastjórnendur: Gylfi Ólafsson, formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar, Magnús Már Guðmundsson framkvæmdastjóri BSRB og Jón Þór Sturluson, háskólakennari og verðandi aðalhagfræðingur sænska fjármálaeftirlitsins.
Stjórnandi: Andrés Jónsson
Stef: Ræðum það - Dire & Nolem
-
Ræðum það snýr aftur á nýju ári eftir fæðingarorlof stjórnandans.
Rætt er um stöðu ríkisstjórnarinnar, deilur um embættisfærslur Svandísar Svavarsdóttur, nýjustu skoðanakannanir, forystuskipti í Sjálfstæðisflokknum, möguleg stjórnarmynstur eftir næstu kosningar, endurkomu Samfylkingarinnar frá fyrsta áratugnum, stöðu Katrínar Jakobsdóttur, tímasetningu alþingiskosninga í ljósi forsetakosninga, forsetaframboð, kröfur til sigurstranglegra frambjóðenda, forsetatíð Guðna, borgarstjóraskipti og hvort Íslendingar séu til í tekjutengdar sektir fyrir umferðarlagabrot.
Gestastjórnendur: Freyja Steingrímsdóttir, samskiptastjóri BSRB og Kolbeinn Marteinsson, almannatengill hjá Athygli
Stjórnandi: Andrés Jónsson
Stef: Ræðum það - Dire & Nolem
-
>>> Arfleifð Dags, Fossvogsbrúin, þrír stokkar settir á ís og veggjöld skoðuð, stjörnur úr bæjarstjórnarmálum á leið á þing, hringrásarhagkerfi stjórnmálanna, stjórnmálaumræða og hvernig verður Silfrið á nýjum tíma? <<<
Andri Steinn Hilmarsson bæjarfulltrúi í Kópavogi, Gylfi Ólafsson bæjarráðsformaður á Ísafirði og Anna Sigrún Baldursdóttir skrifstofustjóri hjá borginni komu í Ræðum það… og fóru yfir sveitarstjórnarpólitík og landsmálapólitík.Stef: Ræðum það - Dire & Nolem
-
Andri Ólafsson, fjölmiðlamaður og samskiptastjóri og Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi og myndlistarmaður fara yfir breytingar sem orðið hafa á afþreyingariðnaðinum í Hollywood með tilkomu Netflix og annarra streymisveitna.
Þá ræðum við um hvers konar bíómyndir eru framleiddar í dag og hvers konar myndir eru hættar að borga sig. Þá upplýsir Sigurjón að hann myndi ekki endurgera Wild at heart en ef svo færi þá myndi hann fá Leonardo di Caprio og Jennifer Lawrence til að leika aðahlutverkin.
Það komu all nokkrar fleiri bransasögur upp úr Sigurjóni og svo fórum við í smá hugleiðingar um íslenska kvikmynda- og fjölmiðlabransann í lok þáttar.
Stef: Ræðum það - Dire & Nolem
Nefnt í þættinum:
The Town - Matt Belloni: https://podcasts.apple.com/is/podcast/the-town-with-matthew-belloni/id1612131897?i=1000624819844
-
>>> Er X.com útpælt hjá Elon Musk eða ekki, hvernig kaupir maður fyrirtæki með vini sínum <<<
Steinar Þór Ólafsson og Arnar Freyr Magnússon komu í Ræðum það… og fóru yfir eigin kaup á steinsmiðjunni Rein.Einnig var rætt um:
- Starfsframann og hvort það sé öruggara val að feta einstigið sem stjórnandi eða vera í eigin rekstri
- Hvort sé álitið flottara og hvort sé líklegra til árangurs, að kaupa fyrirtæki eða stofna sprotafyrirtæki
- Reynslu Steinars af því að vinna sig upp metorðastigann sem stjórnandi í Borgartúni
- Muninn á því að fjármagna kaup á fyrirtæki á Íslandi og í Bandaríkjunum
- Hvernig Arnar og Steinar fjármögnuðu kaupin á Rein og hversu stóran hlut hver heldur á
- Hvað hver og einn starfsmaður fyrirtækis kostar í raun
- Hvort munur sé á viðhorfi stjórnmálaflokka til atvinnulífsins eða hvort litlu skipti hver sé við völd
- Hindranir fyrir þau sem vilja stofna fyrirtæki, ekki síst innflytjendur sem hafa fáar aðrar leiðir til að skapa sér aukna velsæld
- Stærðaróhagkvæmnin á Íslandi, samkeppni innanlands og utan og læsi almennings á hagnaðartölur fyrirtækja
- Afhverju mörg íslensk fyrirtæki skiluðu góðum hagnaði árið 2021
- Hversu mikill hluti landsmanna vinni hjá smærri fyrirtækjum eða örfyrirtækjum
- Afhverju Arnar og Steinar eru að miðla ferlinu við að kaupa og reka fyrirtæki
- Afhverju stofnendur og fjölskyldur þeirra vilja oftast of hátt verð til að selja fyrirtækið sitt
- Hvernig sjálfstæðir atvinnurekendur eru eiginlega aldrei í fríi en eru á móti sinn eigin herra
- Hversu erfitt er að eignast vini eftir þrítugt
Stef: Ræðum það - Dire & Nolem
Nefnt í þættinum:
Alex Hormozi: https://www.youtube.com/@AlexHormozi
Small Business Administration: https://www.sba.gov/
Traction: https://www.amazon.com/Traction-Get-Grip-Your-Business/dp/1936661845/
Alfa framtak: https://www.alfaframtak.is/
Buy and build: https://www.amazon.com/Buy-Then-Build-Acquisition-Entrepreneurs-ebook/dp/B07JKM2F5Q
Steinsmiðjan Rein: https://www.rein.is/
-
Farið var yfir efnahagsástandið í fortíð, framtíð og nútíð í nýjasta þætti af Ræðum það...
Er réttlætanlegt að við vitum hvað fasteignir fólks seldust á? Hvernig virka lán fyrir fyrstu kaupendur og hvernig á maður að horfa á fasteignakaup eftir miklar hækkanir síðustu ára? Hvernig væri hægt að leysa húsnæðisvandann og mæta þörf fólks sem flyst hingað til að vinna í nokkur ár? Er leigumarkaðurinn betri með eða án ríkisafskipta? Er óþól hægra fólks fyrir skattheimtu, ríkisafskiptum og eftirlitsstofnunum einkenni á miklu velsældarskeiði í samfélaginu? Er velsældin komin til að vera og kemur kreppan kannski ekki sem lengi er búið að vara okkur við? Er Tesla hætt að vera stöðutákn nú þegar þúsundir Íslendinga hafa fjárfest í slíkum bíl? Hvernig fór Brexit með Breta og eru mörg framboð í stjórn Íslandsbanka og fleiri fyrirtæki til marks um heilbrigðari markað?
Við vörpuðum fram þessum og fleiri spurningum í þættinum.
---
Gestir: Jónas Atli Gunnarsson hagfræðingur, Kolbeinn Marteinsson almannatengill og Ólafur Finnbogason fasteignasali.
Stjórnandi: Andrés Jónsson
-
Óumdeilt er að gott verð fékkst í sölu ríkisins á hlutum í Íslandsbanka, en munu lögbrot og ámælisverð vinnubrögð við söluna þýða tapað traust og að frekari sala á hlut ríkisins í bönkum tefjist? Hversu mikið áfall er það fyrir Bjarna Benediktsson sem taldi bankasölu vera einn helsta pólitíska árangur sinn í ríkisstjórnarsamstarfinu. Hvernig líður stjórnarflokkunum í samstarfinu? Er þreyta í mannskapnum þrátt fyrir límið á milli formannanna þriggja? Jón Gunnarsson heldur áfram að auka eigið pólitíska kapítal og rýra kapítal ríkisstjórnarinnar eftir að honum var skipt út af í stjórnarráðinu. Hver eru formannsefnin í Sjálfstæðisflokknum á þessari stundu? Er Svandís að styrkja sig í VG með stöðvun hvalveiða? En Þórdís með lokun sendiráðsins í Moskvu? Sem eftir á virtist vera vel tímasett miðað við panikk-ið sem fór af stað í borginni á meðan sólarhringsbylting Wagner og Prigozhin gekk yfir. Hver er staða Pútíns eftir þessi ósköp?
Gestir: Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (Obba), þingmaður Viðreisnar og Grétar Theódórsson almannatengill hjá Spor almannatengslum. Stjórnandi: Andrés Jónsson
-
Koma skammtíma-leiguíbúðir í stað skrifstofuhúsnæðis á efri hæðum í miðborginni? Hvaða hverfi borgarinnar verða dýr í framtíðinni? Hvers vegna borgar sig oft ekki að kaupa illa farið húsnæði, gera upp og selja aftur? Er aukin forsala íbúða (áður en þær eru byggðar) framtíðin í fasteignasölu og mun það tryggja stöðugri uppbyggingu. Vill fólk °allt í einu búa við alveg niður við sjó á Íslandi og mætti breyta grasbalanum framan við Ægissíðu í þéttingarreit?
Þetta og margt fleira í nýjasta þætti af ‘Ræðum það...’
Gestir: Ólafur Finnbogason, fasteignasali og Hrannar Pétursson ráðgjafi og einn eigenda Vinnustofu Kjarvals. Stjórnandi: Andrés Jónsson
-
Er fundurinn í Hörpu stærri viðburður en fundur Reagans og Gorbachev í Höfða? Hvernig kemur Selenskí til fundarins og tengist ný lendingarheimild kafbáta við strendur landsins því eitthvað? Enn stækkar Samfylkingin í könnunum en mun það endast? 28 mánuðir eru til kosninga og margt á eftir að gerast. Er einlæga og krúttlega X-kynslóðin búin að taka við í viðskiptalífinu? Gerbreytt mynd blasir við okkur í kauphöllinni þar sem 68-kynslóðin réði ríkjum áður, rétt eins og hún gerði í stjórnmálunum. Geta millennials eitthvað látið að sér kveða á Alþingi eða er þeirra stjórnmálaafstaða of húðuð með íróníu?
Þetta og margt fleira í nýjasta þætti af ‘Ræðum það...’Gestir: Karítas Ríkharðsdóttir samskiptasérfræðingur og Kolbeinn Marteinsson almannatengill og framkvæmdastjóri Athyglis. Stjórnandi: Andrés Jónsson
-
Aðstoðarmenn í glerbúrum, ríkið klárar flott hús, Kristrún Frosta og Keir Starmer eru “safe pair of hands” í augum kjósenda, Samfylkingin gaf Pírötum stjórnarskrána og Viðreisn ESB-málið, Twitter, Elon Musk og meginstraumsfjölmiðlar, skortur á nýjum andlitum í umræðunni, hvað skín í gegn ef maður les allar ræður Vigdísar Finnbogadóttur, mun Guðni Th. fara fram aftur og vantar meiri átök í íslenska stjórnmálaumræðu?
Þetta og margt fleira í nýjasta þætti af ‘Ræðum það’.Gestir: Þórður Gunnarsson hagfræðingur, Andri Ólafsson, samskiptastjóri og sjónvarpsmaður og Freyja Steingrímsdóttir, samskiptastjóri og fyrrverandi aðstoðarmaður formanns Samfylkingarinnar. Stjórnandi: Andrés Jónsson
-
Ræðum það snýr aftur og nú á sunnudegi >>>
Aðalgestur þáttarins var Tatiana Hallgrímsdóttir, forstöðumaður menningarmála á Edition-hótelinu.
Gestastjórnendur voru Gunnar Þorvaldsson, sjálfstætt starfandi strategisti og Auðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sölu- og markaðsmála Nóa Síríus.
Rætt var um markaðsmál, Mark Ritson, vörumerki, ferðaþjónustu, fjölgun ferðamanna og fjölgun Íslendinga, borgarskipulag, umferð, páskaegg, viðhorf Íslendinga í verðbólgu og kreppu og trú viðstaddra á mjúka lendingu efnahagslífsins.
Þá er í lok þáttarins nýr liður "Pósthólfið" - þar sem spurningum til þáttarins er svarað. Báðar spurningarnar sneru að þessu sinni að Linkedin, hvernig eigi að stilla upp prófíl svo að þeim sem starfi við ráðningar líki og hvernig eigi að yfirvinna aulahrollinn og stinga sér út í umræðuna á Linkedin með færsluskrifum og athugasemdum.
Stjórnandi Ræðum það er Andrés Jónsson.
---
✉️ Sendið okkur spurningar á [email protected] og við reynum að svara þeim í næsta þætti.
-
Ræðum það hefur aldrei komið jafn þétt út >>>
Aðalgestur þessa þáttar var Kolbeinn Marteinsson, almannatengill.
Gestastjórnendur voru Sigríður Rakel Ólafsdóttir, forstöðumaður markaðsmála hjá Öskju og Bergsteinn Sigurðsson, sjónvarpsmaður á RÚV.
Rætt var um hvað fólk á þessum aldri metur til lífsgæða, um sánur, búsetu, vináttu á gamals aldri og ýmislegt fleira. (Athugið að þátturinn var tekinn upp fyrir nokkru síðan.)
Hér er tengill á fróðleik um heilnæmi sánuferða, sem minnst var á í þættinum: https://www.foundmyfitness.com/topics/sauna
Stjórnandi Ræðum það er Andrés Jónsson.
---✉️ Sendið okkur spurningar um hvaðeina á [email protected] og við reynum að svara þeim í næsta þætti.
-
Ræðum það rúllar af stað á ný á nýju ári >>>
Aðalgestur þáttarins var Kristín Soffía Jónsdóttir "leitari".
Gestastjórnendur að þessu sinni voru Gísli Brynjólfsson, forstöðumaður markaðsmála hjá Icelandair, Magnús Hafliðason, forstjóri Domino´s á Íslandi og Haraldur Þorleifsson, starfsmaður Twitter.
Rætt var um möguleika og hættur við gervigreindartækni eins og ChatGPT, rætt var um starfsferil leitara en Kristín Soffía hyggst finna rekstur til að kaupa og er nú þegar með fjármagn í leitarsjóði að baki sér og loks var aðeins farið inn á hvort framundan sé efnahagskreppa.
Stjórnandi Ræðum það er Andrés Jónsson.
---✉️ Sendið okkur spurningar um hvaðeina á [email protected] og við reynum að svara þeim í næsta þætti.
-
Steinar Þór Ólafsson mætti í spjall um færslu hans á Linkedin um mikilvægi mannauðsdeilda og líkamlega og andlega heilsu starfsfólks.
-
Í þessum þætti af Ræðum það... gera Andrés og Tinni upp árið 2021, hvað stóð upp úr og hvað getum við lært?
Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta sérhæfðs ráðgjafafyrirtækis á sviði almannatengsla, stefnu og stjórnendaleitar. Þar sem við ræðum við fólk sem okkur finnst áhugavert og er að gera spennandi hluti. Stef: Ræðum það - Dire & Nolem - Mehr anzeigen